Söluhagnaður
Skuldsetning
Orðið skuldsetning er notað þegar lítil verðbreyting á undirliggjandi eign fyrir CFD-samning verður að meiri verðbreytingu sem gerir það að verkum að CFD-samningurinn veitir "hraðari" arð. "10%" skuldsetning (eða 1:10) þýðir að ef verð undirliggjandi eignar breytist um 1%, mun verð CFD-samningsins breytast um 10%. Á viðskiptaverkvanginum er hægt að sjá skuldsetningu hvers fjárgernings á tenglinum "upplýsingar" hjá hverjum CFD-samningi. Skuldsetning, sem stundum er kölluð "vogun" sem getur miklað gróða, getur einnig miklað tap.
Vinsamlegast athugið að þeim mun hærri sem skuldsetningin er, þeim mun meiri áhrif munu litlar verðbreytingar hafa og þetta getur haft veruleg áhrif á tryggingarfé.
Framlegðarbeiðni
Tryggingarfé viðskiptavina er rauntímastjórnað og viðskiptavinir fá sendan tölvupóst ef tryggingarfé fer yfir 40% af fjármagni þeirra. Viðhaldsmörk eru lágmarksupphæð af fjármagni sem viðskiptavinur þarf til að viðhalda tilboði opnu. Ef fjármagn þitt fer undir lágmarksupphæð mun Plus500 gera framlegðarbeiðni og loka öllum opnum tilboðum þar til fjármagn á reikningnum þínum fer aftur yfir viðhaldsmörk.

Dæmi um tilfelli framlegðarbeiðni:

Þú skráðir þig inn og borgaðir $600 með kreditkorti
Innistæða: $600 (Innborganir - Úttektir + G&T á lokuðum tilboðum)
Handbær innistæða: $600 (Innistæða + G&T á opnum tilboðum - tryggingarfé)
G&T = $0 (Heildargróði og -tap á öllum opnum tilboðum að daglegum framlögum meðtöldum)
Fjármagn: $600 (Innistæða + G&T á opnum tilboðum)

Kl. 11.30 - þú kaupir Google hlutabréf (CFD samningar) á $540.00
Heildarupphæð sem þú keyptir er: 10*$540.00 = $5400
Tryggingarfé sem krafist er fyrir 10 Google hlutabréf er 10%: $540
Viðhaldsmörk sem krafist er fyrir 10 Google hlutabréf er 5%: $270

Ef fjármagn þitt fer niður fyrir $270 munt þú fá framlegðarbeiðni.
Plus500 mun gera upp opnu tilboðin þín.
Innistæða: $600.
Handbær innistæða eftir kaup á Google hlutabréfum er: $60 ($600 - 10%*$5400)
G&T = $0
Fjármagn: $600 ($600 + $0)

Kl. 12.15 - Google hlutabréf fara niður í $520
Innistæða: $600
Handbær innistæða: $0 ($600 - 10%*$5400 + 10*($520-$540))
G&T = -$200 (10*$520 - 10*$540)
'Fjármunir' eru $400 (-$200 + $600)

Kl. 13.10 - Google hlutabréf fara niður í $490. Þú færð framlegðarbeiðni og Plus500 gerir upp tilboðið þitt.
Innistæða: $600
Handbær innistæða: $0 ($600 - 10%*$5400 + 10*($490-$540))
P&L = -$500 (10*$490 - 10*$540)
Fjármagn: $100 (-$500 + $600)

Ástæðan fyrir framlegðarbeiðninni er að fjármagn þitt er $100 og þú þarft að hafa $270 til að viðhalda opnu tilboði á 10 Google hlutabréfum. Þess vegna gerði Plus500 upp tilboðið þitt. Núgildandi innistæða þín er:

Innistæða: $100 (Innistæðan breytist einungis þegar tilboði er lokað eða peningar teknir út).
Handbær innistæða: $100 (Innborganir - Úttektir + G&T á lokuðum tilboðum)
G&T = $0 (engin opin tilboð)
Fjármagn: $100 (Innistæða + G&T á opnum tilboðum)
Tryggingarfé
Til að opna nýtt tilboð verður handbært fjármagn að vera meira en upphaflegt tryggingarfé. Umbeðið tryggingarfé er í samræmi við hvern og einn fjárgerning.

Til að sjá tryggingarfjárupphæð fyrir ákveðinn fjárgerning skaltu fara í aðalskjámyndina á Plus500 verkvanginum, velja fjárgerninginn sem þú vilt sjá og smella á 'Upplýsingar' lengst til hægri á skjánum. Sprettigluggi mun birtast og upphæð tryggingafjár er sýnd efst í hægra horni gluggans.
Viðhaldsmörk
Til að viðhalda nýju tilboði opnu, verður þú að fulltryggja að handbært fjármagn sé yfir viðhaldsmörkum. Umbeðin viðhaldsmörk eru í samræmi við hvern og einn fjárgerning.

Til að sjá viðhaldsmörk fyrir ákveðinn fjárgerning skaltu fara í aðalskjámyndina á Plus500 verkvanginum, velja fjárgerninginn sem þú vilt sjá og smella á 'Upplýsingar' lengst til hægri á skjánum. Sprettigluggi mun birtast og upphæð viðhaldsmarka er sýnd efst í hægra horni gluggans.

Tryggingarfé er rauntímastjórnað og ef upphæð tryggingarfjár fer yfir 40% af virði fjármagns, mun viðkomandi fá sendan tölvupóst.
Öryggisráðstafanir
Ef aukatryggingarfé er ekki lagt inn, mun tilboðum vera lokað vegna öryggisráðstafana til að koma í veg fyrir að viðskiptavinir verði skuldum vafnir.
Prufureikningur
ÓKEYPIS ótarkmaður reikningur
Þjálfun
Kennsla Lærðu að stunda viðskipti
Skilningur
Aðgang að þessari síðu er ekki hægt að fá frá United States.
Tryggt með SSL