Áhættuvörn og tegundir fyrirmæla
Kaup og sala á markaðsverði
Viðskiptavinir geta notað Plus500 til að kaupa og selja CFD-fjárgerninga á núgildandi markaðsverði (innan þeirra verðmarka sem sett eru fyrir tiltekinn fjárgerning). 'Markaðsbil' hvers CFD-fjárgernings er sýnt í kaup/sölu sprettiglugganum sem birtist þegar þú smellir á 'Kaup' eða 'Sala' í viðskiptaskjámyndinni. Mismunandi "tegundir fyrirmæla" eru í boði á viðskiptaverkvangi Plus500 til að auðvelda viðskiptavinum áhættustjórnun. Þegar notandi hefur sett mörk með notkun þessara tegunda fyrirmæla, mun Plus500 ábyrgja þau. Þessi takmörk eru nauðsynleg ef nettengingin rofnar af einhverjum ástæðum.
Lokun við gróða
Lokun við gróða er góð leið til að vernda gróða þinn ef fjárgerningurinn (gjaldeyrir, skuldabréf, hrávörur eða vísitölur) hækkar. Fyrirmæli um lokun við gróða segja Plus500 að selja fjárgerning þegar og ef hann fer upp í ákveðið verðgildi.
Lokun við tap (Stop loss) – (hámarkstap)
Lokun við tap er góð leið til að vernda þig frá tapi ef fjárgerningurinn (gjaldeyrir, skuldabréf, hrávörur eða vísitölur) lækkar. Fyrirmæli um lokun við tap segja Plus500 að selja fjárgerning þegar og ef hann lækkar í ákveðið verðgildi.

Þegar bréfið er á þessu verði breytast fyrirmælin um lokun við tap í viðskiptafyrirmæli. Viðskiptafyrirmæli segja Plus500 að selja strax á besta mögulega verði. Á óstöðugum markaði getur verið að þú fáir ekki það verð sem þú vildir en þú ættir að komast nálægt því.

Verndaðu gróða þinn
Fyrirmæli um lokun við tap eru gerð til að vernda gróða þinn á hækkandi bréfum. Þú ákveður á hvaða verði þú vilt loka fjárgerningi og skipar Plus500 að loka tilboðinu ef því verði er náð.

Það eru fjórar leiðir til að gefa fyrirmæli um lokun við tap.
1. Þú slærð inn kaup/söluverð. Til dæmis, ef bréfið þitt selst á $40 stykkið, getur þú sett við það fyrirmæli um lokun við tap á $37.50. Þegar verð þess lækkar í $37.50 verða fyrirmælin um lokun við tap gild og Plus500 selur það.

2. Þú slærð inn hámarksupphæð á tapi. Plus500 mun reikna út viðeigandi verð fyrir lokun við tap.

3. Þú slærð inn punktafjölda frá núgildandi verði. Plus500 mun reikna út viðeigandi verð fyrir lokun við tap.

4. Þú slærð inn prósentu frá núgildandi verði. Plus500 mun reikna út viðeigandi verð fyrir lokun við tap.

Raðstöðvun
Raðstöðvun gerir miðlurum kleift að gefa viðskiptafyrirmæli við tap. Fyrirmælin eru uppfærð sjálfkrafa til að festa gróðann þegar markaðurinn færist þeim í hagnað. Raðstöðvanir er hægt að gera með því að smella á 'Ítarlegt' hnappinn þegar 'Viðskiptafyrirmæli' eru búin til.

Það eru fjórar leiðir til að gefa fyrirmæli um lokun við tap.
1. Þú slærð inn verð fyrir raðstöðvun. Til dæmis, ef bréfið þitt selst á $40 stykkið, getur þú sett við það fyrirmæli um raðlokun við tap á $37.50.

2. Þú slærð in hámarks upphæð á tapi. Plus500 mun reikna út viðeigandi raðstöðvun.

3. Þú slærð inn punktafjölda frá núgildandi verði. Plus500 mun reikna út viðeigandi verð fyrir lokun við tap.

4. Þú slærð inn prósentu frá núgildandi verði. Plus500 mun reikna út viðeigandi verð fyrir lokun við tap.

Dæmi um raðstöðvun:
Kl. 12.50 Yahoo viðskipti eru í $45.51/$45.73 (Sala/Kaup)

Kl. 12.50 Þú gefur viðskiptafyrirmæli með 50 punkta raðstöðvun = $0.5 = (-1.1%) til að kaupa 100 Yahoo bréf
Þú kaupir 100 Yahoo bréf á $45.73
Þarafleiðandi mun lokun við tap verða gild þegar Yahoo er selt á $45.01. ($45.51 – $0.5)

Kl 14.05 Verð á Yahoo hækka snögglega og eru á $47.60 stykkið (nýja lokunarverðið breytist í $47.10)

Kl 15.10 Verð á Yahoo halda áfram að hækka og fara upp í $49.75 stykkið (nýja lokunarverðið breytist í $49.25)

Kl. 16.15 Yahoo verð byrja að lækka hratt og fara niður í $42.51. Þar sem lokunarverðið þitt var $49.25, framkvæmdi Plus500 lokun við tap á þessu verði. Lokun við tap framkvæmd.

Yfirlit gróða: 100* ($49.25–$45.73) = $352. (Ef ekki var beðið um raðstöðvun en einungis Lokun við tap hefðir þú orðið fyrir miklu tapi.)

Kaupfyrirmæli
Kaupfyrirmæli eru framkvæmd á þeim tímapunkti þegar markaðsverð nær tilgreindu verði og nýtt tilboð er opnað. Verðið getur verið hærra eða lægra en núgildandi verð.

Til eru fjórar gerðir af kaupfyrirmælum:
1. Kaup undir þolmörkum: bíddu þar til verðið er lægra en núgildandi verð (notað í kaupum).

2. Kaup yfir þolmörkum: bíddu þar til verðið er hærra en núgildandi verð (notað í kaupum).

3. Sala yfir þolmörkum (short): bíddu þar til verðið er hærra en núgildandi verð (notað í sölu).

4. Sala undir þolmörkum (short): bíddu þar til verðið er lægra en núgildandi verð (notað í sölu).

Til dæmis, ef þú vilt ekki kaupa Google hlutabréf fyrr en verð þeirra fellur í $450 myndirðu gera kaup undir þolmörkum við $450. Ef verðið fellur ekki í það gildi, munu fyrirmælin ekki vera framkvæmd en munu vera yfirstandandi þar til þú hættir við þau.

Til að búa til ný kaupfyrirmæli með Plus500 skaltu einfaldlega:
-> Fara í aðalskjámyndina
-> Smella á 'Kaupa' eða 'Selja'
-> Smella á 'Ítarlegt' /> -> Fylla út viðeigandi kaupfyrirmæli
-> Smella á 'Kaupa'
Prufureikningur
ÓKEYPIS ótarkmaður reikningur
Þjálfun
Kennsla Lærðu að stunda viðskipti
Skilningur
Aðgang að þessari síðu er ekki hægt að fá frá United States.
Tryggt með SSL